|
Ársskýrsla
2002
Starfsmenn
Auður Styrkársdóttir stjórnmálafræðingur
tók við starfi forstöðumanns um mitt ár 2001.
Forstöðumaður er eini fasti starfsmaður safnsins en til
aukaverkefna árið 2002 var ráðin Hólmfríður
Anna Baldursdóttir, nemi í kynjafræðum við
Háskóla Íslands. Til þessa verkefnis fékkst
styrkur frá Rannsóknasjóði Háskóla
Íslands.
Stjórn safnsins skipa:
Emilía Sigmarsdóttir, fulltrúi Landsbókasafns
Íslands-Háskólabókasafns. Sigríður
Th. Erlendsdóttir, fulltrúi Rannsóknastofu í
kvennafræðum. Stefanía María Pétursdóttir,
fulltrúi Kvenfélagasambands Íslands.
Almennt um starfsemi safnsins
Unnið er samkvæmt markmiðum Kvennasögusafns Íslands:
að safna, skrá og varðveita heimildir um sögu kvenna.
Safninu er einnig ætlað að miðla þekkingu um sögu
kvenna, aðstoða þá sem leita heimilda á því
sviði og hvetja til rannsókna á sviði kvennasögu
og kvennafræða.
Til safnsins leita einkum nemar og fræðimenn í heimildaleit,
en einnig annað áhugafólk um kvennasögu. Talsvert
berst af fyrirspurnum símleiðis og með tölvupósti.
Safnið er skráð í gagnagrunna um stofnanir á
sviði kvennasögu og kynjarannsókna og berst því
nokkuð af fyrirspurnum erlendis frá.
Dagleg starfsemi felst í:
- Viðveru á afgreiðslutíma safnsins.
- Viðtöku, grisjun, skráningu og frágangi þeirra
gagna sem í safnið berast.
- Aðstoð við notendur safnsins. Er þá átt
við aðstoð við heimildaöflun vegna verkefna á
sviði kvennasögu og kynjafræða, einnig ráðgjöf
um verkefni á þessu sviði.
- Upplýsingum og ráðgjöf veittri um tölvupóst,
bæði til innlendra aðila og erlendra.
- Upplýsingum og ráðgjöf veittri í síma,
bæði til notenda safnsins og einstaklinga og félagasamtaka
sem hafa hug á að afhenda safninu gögn.
Þá eru ýmis önnur verkefni í höndum
forstöðumanns: norrænt samstarf, ráðstefnur
og fundir, útgáfumál, sýningar, greinaskrif,
fyrirlestrar, fjáröflun o.fl. Forstöðumaður átti
sæti í undirbúningsnefnd að menningarnótt
Landsbókasafns Íslands 2002, en safnið gekkst fyrir
opnu húsi undir heitinu ,,Galdranótt í Þjóðarbókhlöðu"
á menningarnótt Reykjavíkurborgar 17. ágúst.
Forstöðumaður á einnig sæti í námskeiðanefnd
Landsbókasafns. NIKK undirbýr nú ráðstefnu
um kvennahreyfingar á Norðurlöndunum árið 2004
og á forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands
sæti í faglegri undirbúningsnefnd ráðstefnunnar.
Sýningar
Kvennasögusafn hleypti af stokkunum sýningaröðinni
,,Fellingar" - samvinnuverkefni safnsins, Landsbókasafns og
13 starfandi myndlistarkvenna um mitt ár 2001. Aðeins tvær
sýningar voru árið 2002 vegna umfangsmikillar sýningar
tileinkaða 100 ára afmæli Halldórs Laxness í
Þjóðarbókhlöðu. Röðin hefur
það markmið að varpa ljósi á hlut nokkurra
núlifandi myndlistarkvenna í íslenskri listasögu
og efla skrásetningu á starfi myndlistarkvennna almennt.
Hver sýning stendur í einn mánuð og er tvískipt.
Annars vegar í Kvennasögusafni á 4. hæð og
hins vegar á opnu svæði fyrir framan útlánadeild
á 2. hæð. Auk þess eru á 2. hæð
upplýsingar um þá listakonu sem sýnir hverju
sinni og tölulegar staðreyndir sem varpa ljósi á
hlut kvenna í íslenskri listasögu. Listakonurnar afhenda
Kvennasögusafni gögn um listferil sinn. Með því
vilja þær hvetja konur til að safna gögnum um eigin
sögu.
Listakonurnar sem sýndu á árinu 2002 voru þessar:
09.02. Eygló Harðardóttir
08.02. Gerla
Sýningaröðinni verður fram haldið á árinu
2003. Að undirbúningi hafa unnið forstöðumaður
og Emilía Sigmarsdóttir.
Kvennasögusafn gekkst fyrir sýningu á handverki starfsmanna
Þjóðarbókhlöðu í samvinnu við
Emilíu Sigmarsdóttur og Kristínu Bragadóttur,
forstöðumann þjóðdeildar. Var sýningin
sett upp í kennslurými á 4. hæð bókhlöðunnar.
Hún var opnuð 30. maí og stóð fram í
júlí.
Fundir og ráðstefnur
Forstöðumenn hafa sótt fundi og fyrirlestra er tengjast
kvennasögu og safnamálum. Er einkum um að ræða
fundi og fyrirlestra Rannsóknastofu í kvennafræðum
og Sagnfræðingafélags Íslands, en einnig ráðstefnur
og fundi sem félagasamtök gangast fyrir og forstöðumenn
hafa talið ávinning af. Stærstu ráðstefnurnar
á árinu 2002 voru Söguþingið 2002 sem haldið
var 31.maí-1. júní og Ráðstefna um kvenna-
og kynjafræðirannsóknir sem Rannsóknastofa í
kvennafræðum við Háskóla Íslands gekkst
fyrir 4.-5. október.
Útgáfu- og sölumál
Kvennasögusafn Íslands var útgefandi bæklingsins
Kvennasöguslóðir í Kvosinni sem lýsir gönguleiðum
í elsta bæjarhluta Reykjavíkur þar sem konur
koma eða hafa komið við sögu. Höfundur texta er
Auður Styrkársdóttir forstöðumaður. Styrkir
fengust frá Reykjavíkurborg og Bílastæðasjóði
Reykjavíkur.
Áður útgefnar bækur safnins seljast hægt
en stöðugt.
Erlent samstarf
Kvennasögusafn Íslands er í nánum tengslum við
NIKK, Nordisk institutt i kvinne- og kjønnsforskning, í
Osló. Safnið er skráð í gagnagrunna á
vegum NIKK og er jafnan getið í tímaritum NIKK ((NIKK
Magasin, Nytt fra NIKK og News from NIKK). Forstöðumaður
tók sæti í faglegri undirbúningsnefnd að
ráðstefnu um kvennahreyfingar á Norðurlöndunum
sem NIKK fyrirhugar að halda árið 2004. Forstöðumaður
hefur unnið að því að fá ráðstefnuna
hingað til lands.
Safnið er skráð í gagnagrunninn Mapping the World
of Women´s Information Services Database sem rekinn er á
vegum IIAV (International Information Centre and Archives for the Women´s
Movement í Amsterdam. Slóð grunnsins er: http://www.iiav.nl/mapping-the-world.
Kvöldvaka
Árleg kvöldvaka Kvennasögusafns Íslands var haldin
5. desember. Henni er ætlað að vekja athygli á safninu
og starfsemi þess, en einnig kvennasögurannsóknum og
þeim sem þær stunda.
Tvö erindi voru flutt að þessu sinni. Helga Kress, prófessor
við Háskóla Íslands, flutti erindi er nefndist:
,,Hún mamma sín fór burt, burt, burt" og fjallaði
það um barnalýsingar í verkum Halldórs
Laxness. Björg Einarsdóttir flutti erindi er nefndist: ,,Litlu
hvítu rúmin" og fjallaði það um kvenfélagið
Hringinn sem stofnað var í Reykjavík árið
1904.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir söng tvö ljóða
Halldórs Laxness: ,,Hvert örstutt spor" og ,,Hjá
lygnri móðu". Einnig söng Guðrún Edda
tvo gamla sálma.
Sérverkefni
Stjórn Kvennasögusafns Íslands réð Hólmfríði
Önnu Baldursdóttur, nema í kynjafræðum við
Háskóla Íslands til sérverkefna og sumarafleysingar
tímabilið júní - ágúst 2000. Verkefni
Hólmfríðar Önnu var að taka saman lista yfir
þær heimildir sem til eru á Landsbókasafni er
tengjast sögu kvenna og flokka niður eftir efnisatriðum.
Sjá má hluta af vinnu Hólmfríðar Önnu
á heimasíðu safnsins undir 'Lesefni'. Styrkur til þessa
verkefnis fékkst hjá Rannsóknasjóði Háskóla
Íslands og var unnið í samvinnu við Þorgerði
Einarsdóttur, lektor í kynjafræðum við Háskóla
Íslands.
Ýmislegt
· Kvennasögusafn Íslands gekkst fyrir tveimur bókakynningum
í fyrirlestrarsal á 2. hæð Þjóðarbókhlöðu,
báðar haldnar í hádeginu. Fyrri kynningin var
haldin 13. nóvember og kynntu eftirtaldar eftirfarandi verk: Ragnhildur
Richter: Íslenskar konur: Ævisögur; Helga Sigurjónsdóttir:
Sveitin mín-Kópavogur: frásagnir bekkjarsystkina;
Guðrún Friðgeirsdóttir: Norðanstúlka-bernskusaga;
Guðrún Sigfúsdóttir: Sonja: Líf og leyndardómar
Sonju W. Benjamínsdóttur Zorilla eftir Reyni Traustason.
Síðari kynningin var haldin 6. desember og kynntu þá
eftirfarandi eftirtalin verk sín: Gerður Kristný: Ég
veit þú kemur; Marjatta Ísberg: Ljóðelskur
maður borinn til grafar; Sigurbjörg Þrastardóttir:
Sólar Saga; Elísabet Ólafsdóttir: Vaknað
í Brüssel. Góð aðsókn var að báðum
þessum kynningum.
· Forstöðumaður tók saman í litla fjölritaða
örk upplýsingar um 8. mars og lét liggja frammi í
afgreiðslu Þjóðarbókhlöðu. Einnig
var henni dreift 8. mars á fundi sem Menningar- og friðarsamtök
íslenskra kvenna og fleiri samtök gengust fyrir, en forstöðumaður
hélt þar erindi um uppruna dagsins og MFÍK.
· Þann 19. júní var opnuð gönguleiðin
Kvennasöguslóðir í Kvosinni í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Borgarstjóri, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, ávarpaði gesti og forstöðumaður
safnsins opnaði gönguleiðina. Ríflega 100 manns mættu
til þessarar athafnar og gengu síðan undir leiðsögn
Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings. Þessi
viðburður var unninn í samvinnu við Kvenréttindafélag
Íslands sem bauð göngufólki til kaffisamsætis
og fagnaði þannig 95 ára afmæli sínu.
· Á árinu lagði forstöðumaður nokkra
áherslu á fræðslustarfsemi safnsins, einkum gegnum
veraldarvefinn. Þar hefur forstöðumaður sett upp skrá
um allar íslenskar konur sem lokið hafa doktorsprófi.
Þetta verkefni er unnið í samvinnu við Önnu
Höllu Björgvinsdóttur, starfsmann á þjóðdeild
Landsbóksafns Íslands. Einnig voru settir á veraldarvefinn
nokkrir heimildalistar úr sögu íslenskra kvenna sem
Hólmfríður Anna Baldursdóttir vann fyrir Kvennasögusafn
Íslands.
· Forstöðumaður tekið upp þá nýbreytni
að senda kennurum á sviði kynjafræða við
H.Í. reglulega ljósrit af efnisyfirlitum tímarita
á sviði kvennafræða sem Landsbókasafn kaupir
og vekja athygli þeirra á rafrænum aðgangi tímarita.
Hefur þetta mælst mjög vel fyrir meðal kennara.
· VESTNORD-verkefnið hefur skilað miklum árangri
og má nú lesa gömul blöð og tímarit
frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi í
heimilistölvum. Kvennasögusafn Íslands átti aðild
að verkefninu að því leyti að hluti af þessu
safni er Kvennablaðið er Bríet Bjarnhéðinsdóttir
gaf út.
· Kvennagagnabankinn sem stofnað var til á árinu
2002 að frumkvæði Rannsóknastofu í kvennafræðum
við Háskóla Íslands er nú tilbúinn
hjá hönnuðum. Um áramótin 2002/2003 skorti
þó enn fjármagn til að kynna hann myndarlega og
taka í notkun.
Ritstörf
Auður Styrkársdóttir: Kvennasöguslóðir
í Kvosinni. Reykjavík, Kvennasögusafn Íslands,
2002.
Auður Styrkársdóttir og Jón Hreinsson (ritstj.):
Verkefnastjórnun. Tímarit Verkefnastjórnarfélags
Íslands, 1. tbl. 2002.
Auður Styrkársdóttir: 'Mörg eru geð guma. Hinn
mannlegi þáttur í verkefnastjórnun'. Verkefnastjórnun.
Tímarit Verkefnastjórnunarfélags Íslands,
1. tbl. 2002, s. 8.
Auður Styrkársdóttir: Íslenskir kvendoktorar
1926-2001. Raðað eftir efni. Reykjavík, Kvennasögusafn
Íslands, 2002. Fjölrit, 9 bls.
Auður Styrkársdóttir: Íslenskir kvendoktorar
1926-2001. Raðað eftir árum. Reykjavík, Kvennasögusafn
Íslands, 2002. Fjölrit, 26 bls.
Auður Styrkársdóttir: 8. mars. Uppruni alþjóðlegs
baráttudags kvenna. Reykjavík, Kvennasögusafn Íslands,
2002. Fjölrit, 4 bls.
Fyrirlestrar og safnkynning
31. janúar flutti forstöðumaður erindi á Rabbfundi
Rannsóknastofu í kvennafræðum við Háskóla
Íslands. Fjallaði það um prófkjör og
hlut kvenna á framboðslistum á Íslandi.
28. febrúar kynnti forstöðumaður Kvennasögusafn
Íslands á bókmenntakvöldi í Reykjanesbæ.
8. mars flutti forstöðumaður erindi um sögu 8. mars
á fundi MFÍK og fleiri samtaka.
15. mars kynnti forstöðumaður Kvennasögusafn Íslands
á formannafundi Kvenfélagasambands Íslands sem haldinn
var í Munaðarnesi. Stefanía María Pétursdóttir
sótti þennan fund með forstöðumanni.
Tveir gestir tengdir söfnum á Norðurlöndunum sóttu
Kvennasögusafn Íslands heim: Marjaliisa Hentilä frá
Työväen Arkisto (Skjalasafni finnskra verkamanna) kom 15. maí
og Berit Backlund frá Kvinnohistoriska samlingarna kom 25. ágúst.
Á döfinni
Áfram verður unnið að því að miðla
upplýsingum um sögu og stöðu íslenskra kvenna,
einkum gegnum veraldarvefinn. Fleiri heimildalistar verða settir fram
og um mitt ár verður væntanleg fyrsta útgáfan
af hinum nýrri kvennahreyfingum á Íslandi. Forstöðumaður
hefur hleypt af stokkunum nefnd til að vinna að því
að mynd verði reist af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur
í Reykjavík og kallað til liðs við sig Kvenréttinda-félag
Íslands og Bríet-félag ungra feminista. Undirbúningur
er skammt á veg kominn en mikill og almennur hljómgrunnur
er meðal kvenna fyrir þessu verkefni.
Aðföng
2002 Talsvert
magn hvers kyns bæklinga og fréttabréfa berst safninu
og er það efni til notkunar í rými safnsins á
4. hæð í Þjóðarbókhlöðu.
Safnið kaupir lítið eitt af bókum en árlega
berast því gjafaeintök bóka frá stofnunum
á sviði kvennasögu og kynjafræða á hinum
Norðurlöndunum.
Kvennasögusafn var áskrifandi að þremur tímaritum
á sviði kvennasögu og kynjafræða: Women's History
Review, The European Journal of Women's Studies og Kvinder, Køn
og forskning. Forstöðumaður ákvað að segja
upp áskriftum að tveimur hinum fyrrnefndu, enda berast bæði
í Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn.
Þá var einnig í sparnaðarskyni sagt upp samningi
við Fjölmiðlavaktina um úrklippur úr völdum
efnisflokkum, enda eftirspurn engin eftir þessu efni. Safnið
fær NIKK Magasin og News from NIKK og einnig berast safninu endurgjaldslaust
tímaritin Genus frá Svíþjóð, Kvast
frá Finnlandi, Kvinneforskning og Bulletin frá Noregi.
Forstöðumaður leggur árlega fram nokkrar beiðnir
um bókakaup til Landsbókasafns. Fyrir tilstilli forstöðumanns
var t.d. keypt alfræðiritið Women in World History: A Bbiographical
Encyclopedia, 17 binda verk sem geymt er í rými handbókasafns
á 2. hæð Þjóðarbókhlöðu.
Árið
2002 var eftirfarandi skráð í aðföng Kvennasögusafns
Íslands:
I. Handrit:
Júlí
Vilhelmína Þorvaldsdóttir, Hrísmóum
1, Garðabæ, færði safninu um hendur Stefaníu
M. Pétursdóttur 5 bréf og og 3 bréfspjöld
Halldóru Bjarnadóttur til Elísabetar Friðriksdóttur,
1 bréf Halldóru til Aðalbjargar Sigurðardóttur
og 1 bréf frá Aðalbjörgu Sigurðardóttur
til Elísabetar ásamt Skrá yfir búninga- og
munasafn Halldóru Bjarnadóttur.
13. september.
Margrét Björgvinsdóttir, Sólheimum 25, gaf safninu
12 bækur úr fórum Árnýjar Filippusdóttur,
skólastýru Kvennaskólans á Hverabökkum,
en Margrét er bróðurdóttir Árnýjar.
Bækurnar eru ræðubækur, minningabækur og fundagerðabækur
námsmeyja frá árunum ca. 1940-1943, allar handskrifaðar,
auk þess 1 kennslubók sem Árný hafði handskrifað.
17. október
Margrét Harðardóttir færði safninu gögn
Delta Kappa Gamma.
12. desember
Sylvía Briem afhenti fundagerðabækur Zontaklúbbs
Reykjavíkur 1941-1988.
II. Annað:
15. janúar
Um hendur Stefaníu Maríu Pétursdóttur barst
safninu M.A. ritgerð Margrétar Árnadóttur, sem
skrifuð var við Nordiska hälsovårdshögskolan í
Gautaborg árið 1996. Ritgerðin ber heitið Fear of Fatness
- the young woman´s lived experience of her body.
18. janúar
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir gaf tvo bókakassa,
um helmingur þeirra frá matreiðsluklúbbi Almenna
bókafélagsins frá 9. áratug 20. aldar. Aðrar
bækur átti Landsbókasafn fyrir, utan The Hyte Report
og Den kvindelige Eunuk e. Germaine Greer. Þær fóru
til aðfangadeildar.
12. apríl
Sigríður Th. Erlendsdóttir gaf Kvinnovetenskaplig tidskrift,
marga árganga.
7. maí
Björg Einarsdóttir og Geirlaug Þorvaldsdóttir
afhentu safninu gögn tengd Áhugahóp um minnisvarða
um Björgu C. Þorláksson
20. júní
Auður Styrkársdóttir gaf penna og barmmerki merkta Kvennalistanum.
27. júní
Jón Kalman kom með orðabókina An American Dictionary
of the English Language, merkta Torfhildi Hólm á upphafssíðu.
Slitin og illa farin. Ögmundur Helgason tók við fyrir
handritadeild, enda margt til þar varðandi Torfhildi.
Júlí
Kristín Jónsdóttir færði safninu nokkur
eintök af tímariti Amalíu Líndal, 65°. Öll
eintök eru til á Landsbókasafni.
Júlí
Ragnheiður Jósúadóttir færði safninu
nokkur eintök af norska tímaritinu Sirene. Öll eintök
eru til á Landsbókasafni.
20. ágúst
Ingibjörg Haraldsdóttir (f. 1942), Seiðakvísl 38,
gaf safninu 3 eintök af Hátíðisdagur kvenna 19.
júní 1916, söngkver.
10. september
Um hendur Stefaníu M. Pétursdóttur barst safninu
ritið ,,Um móður mína Solveigu Pétursdóttur
Eggerz" og Ritaskrá Sigríðar Thorlacius. Einnig
fylgdu mörg rit og sérprent eftir Elsu S. Guðjónsson.
10. september
bárust ómerkt í pósti nokkrir árgangar
af ,,19. júní"
7. nóvember
Þóra Gylfadóttir færði safninu ritgerð
Önnu Guðnýjar Hallgrímsdóttur, f. 1983,
Konur Pókotþjóðflokksins, skrifuð til stúdentsprófs
2003 við Kvennaskólann í Reykjavík.
14. nóvember
Sólbjört Aðalsteinsdóttir, Hlíðavegi
41, Kópavogi, færði safninu eintök af bók
móður sinnar, Guðríðar Snorradóttur,
er ber heitið Ljóð. Einnig fylgja nokkur skjöl úr
eigu móður hennar.
5. desember
Sigríður Thorlacíus færði safninu eintak af
bók sinni Margar hlýjar hendur áritaða af þátttakendum
á 24. landsþingi Kvenfélagasambands Íslands
sem haldið var að Laugarvatni 1.-3. júní 1981.
Á
árinu bárust safninu eftirtaldar skýrslur:
Konur í
vísindum á Íslandi. Menntamálaráðuneytið,
mars 2002. Tekið saman af nefnd um konur og vísindi. Eintak
til hjá Lbs.
Þorgerður
Þorvaldsdóttir: Kynlegar víddir í dómnefndarálitum.
Reykjavík, Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands,
2002. Tvo eintök, annað skráð hjá Lbs.
Subjekt,
politik och könskonstruktion: det jämställda Norden som
framtidsverkstad. Skýrsla frá norrænni rannsóknaráðstefnu
28.1.-1.3. 2002 í Stokkhólmi. NIKK, småskrifter nr.
8, 2002. Skráð hjá Lbs.
Captured Queen. Men´s violence against women in "equal"
Sweden. Brottsoffermyndigheten í Svíþjóð
Skráð hjá Lbs.
|