|
|
||
|
Markmið Kvennasögusafns Íslands Markmið Kvennasögusafns Íslands: 1. Að safna og varðveita hvers konar prentað mál um konur að fornu og nýju, bækur og handrit eftir konur, óprentuð handrit og bréf kvenna svo og önnur skjöl, fundargerðir, starfsskýrslur og skjöl hinna ýmsu kvennasamtaka og erlend rit sem hafa gildi fyrir sögu kvenna. 2. Að sjá til þess að skráð sé allt sem safnið eignast, einnig ýmsar heimildir til sögu kvenna sem er að finna annars staðar, listaverk kvenna og ýmsir munir og verkfæri við vinnu kvenna í íslenskum og erlendum söfnum. 3. Að greiða fyrir áhugafólki um sögu íslenskra kvenna og veita aðstoð við að afla heimilda og miðla þekkingu um sögu kvenna. 4. Að hvetja fólk til að halda til haga hvers konar heimildum sem gildi kunna að hafa fyrir sögu kvenna. 5. Að gefa út fræðslurit og heimildaskrár. 6. Að hafa samvinnu við önnur kvennasögusöfn.
|
|
KVENNASÖGUSAFN ÍSLANDS Arngrímsgötu 3 107 Reykjavík Sími: 525 5779 |