|
Kvennasöguslóðir
í Kvosinni
Hvers
vegna kvennasöguslóðir? Þurfum við að ganga
til að finna sögu kvenna? Getum við ekki fundið hana
í bókum eða sjóvarpsþáttum eða
á Netinu?
Víða erlendis eiga kvennasöguslóðir langa sögu.
Eftirfarandi er haft eftir bandarískri konu, Sarah Orne Jewett,
þegar hún hafði heimsótt heimili systranna Charlotte
og Jane Bronte á heiðum Jórvíkurskíris:
Það kynnist þeim enginn nema hafa komið á
heimili þeirra. Þarna komst ég nálægt
sálu þeirra og sá himin þeirra og jörð.
Án framlags kvenna væri margt öðru vísi í
Reykjavík. Kvennasöguslóðir í Kvosinni opna
að einhverju leyti heim genginna kvenna af öllum stigum þjóðlífsins.
Kvosin verður tæplega söm á eftir.
Gangan getur tekið hálftíma eða þrjá
klukkutíma, allt eftir áhuga göngumanns. Njótið
heil.
Auður
Styrkársdóttir
forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands
1. RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Fyrstu konurnar sem kjörnar voru bæjarfulltrúar voru
Bríet Bjarnhéðindóttir, Guðrún Björnsdóttir,
Katrín Magnússon og Þórunn Jónassen,
allar kjörnar af lista sem kvenfélög bæjarins buðu
fram 1908. Auður Auðuns (1911-1999) gegndi embætti borgarstjóra
fyrst kvenna 1959-1960 (ásamt Geir Hallgríms-syni). Næsta
kona til að gegna embætti borgarstjóra var Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir (1954-), fyrst kjörin
1994. Borgarstjórn kýs borgarstjórann. Í maí
2002 voru kjörnar 6 konur og 9 karlmenn í borgarstjórn
og var hlutur kvenna því 40%.
2. TJARNARGATA
12
Ráðhús Reykjavíkur frá 1914-1929 og Slökkvistöð
1913-1966. Hér bjó einnig
Elka Björnsdóttir (1881-1924) frá 1917-1922 en hún
var ráðin til að ræsta á skrifstofum borgarstjóra
og Slökkvistöðinni og fékk herbergi til íbúðar
í húsinu.
Elka varð snemma námsfús en átti litla möguleika
á að hljóta formlega menntun. Henni tókst þó
að afla sér staðgóðrar þekkingar með
því að lesa bækur og tímaritsgreinar og
sækja fyrirlestra í Reykjavík, en þangað
réði hún
sig í vist þegar hún flutti að heiman 1906. Hún
var vinnukona í fimm ár og gerðist síðan
lausakona og starfaði m.a.við saltfiskverkun, síldarsöltun,
þvotta og heimilishjálp þar til hún fékk
fasta stöðu hjá bænum. Hún þvoði
öll gólf í húsinu og kveikti eld í öllum
ofnum og sá um að bursta þá og
hreinsa. Hún varð sjálf að sækja eldsmat í
kolageymsluna og bera að eldstæðum og flytja síðan
öskuna í burtu. Moldargötur réðu víðast
ríkjum
í Reykjavík á þessum tíma og því
var baráttan við óhreinindin mun harðari en nú.
3. VONARSTRÆTI
12
Heimili Theódóru Guðmundsdóttur Thoroddsen skáldkonu
(1863-1954) frá
árinu 1908-1930. Hún fæddist að Kvennabrekku í
Dölum og lauk prófi frá Kvennaskólanum í
Reykjavík (sjá nr. 22 og 36). Theódóra giftist
Skúla Thoroddsen og eignuðust þau 13 börn, þar
af náðu tólf fullorðinsaldri.
Theódóra var virk í menningar- og bókmenntalífi
Reykjavíkur og hafði mikinn áhuga á þjóðmálum,
einkum þeim er lutu að kvenréttindum. Hún fór
ekki að sinna ritstörfum fyrr en á miðjum aldri og
þekktust er hún fyrir þulur sínar, m.a. Tunglið,
tunglið taktu mig.
4. TJARNARGATA
4
Kristine Brún, ekkja Sigvards Bruun tugthúsmeistara, stundaði
hér garðrækt og hlaut verðlaun Danska landbúnaðarfélagsins
1792, en það var í fyrsta sinn sem slík verðlaun
voru veitt til Reykjavíkur. Kálgörðum fjölgaði
mjög í bænum eftir þessa verðlaunaveitingu.
5. AÐALSTRÆTI
14-16
Hér hafa fundist mannvistarleifar frá landnámstíma
og telja margir Reykvík-ingar að bær Ingólfs Arnarsonar
og Hallveigar Fróðadóttur hafi staðið hér.
Ingólfs er minnst með Ingólfstorgi og styttu á
Arnarhóli. Við Hallveigu er kenndur lítill stígur
í Þingholtunum (sjá þó nr. 7).
Margrethe Angel átti hús er hér stóð 1791-1796.
Hún rak veitingasölu og ræktaði lóðina
kringum húsið, m.a. garðávexti sem hún seldi,
en slíkt var ekki algengt í Reykjavík á þeim
tíma. Hún hlaut verðlaun Danska land-búnaðarfélagsins
1792 fyrir garðrækt ásamt Kristine Brún (sjá
nr. 4).
Fyrsti barnaskóli Reykvíkinga var hér til húsa
1831-1848. Hólmfríður Þorvaldsdóttir, eiginkona
Jóns Guðmundssonar ritstjóra, hóf matsölu
um
1853 og seldi aðallega skólapiltum, þingmönnum,
menntamönnum og listamönnum. Matsalan var rekin til 1876.
6. AÐALSTRÆTI
12
Augusta Svendsen (1835-1924) rak hér verslun frá 1897 til
dánardags og eftir það dótturdóttir hennar
Sigríður Björnsdóttir. Augusta var fyrsta kaupkonan
í Reykjavík og á öllu landinu. Í verslun
hennar fengust slifsi og svuntur, sessur, lampaskermar, mynstur og efni.
Einnig var seldur ýmis kvenfatnaður.
Handan götunnar er Prentsmiðjubrunnurinn, aðalbrunnur Reykvíkinga
þar til vatnsveita var lögð í bæinn 1909.
Áður sótti fólk allt vatn í brunna. Það
var hlutskipti margra einstæðinga á gamalsaldri að
hafa þann starfa að bera vatn í fötum til bæjarbúa.
Meðal þeirra voru konurnar Gunnsa grallari, Sigga blaðra
og Lauga með loddana. Nöfnin endurspegla vel stöðu þeirra
í samfélaginu.
7. HALLVEIGARSTAÐIR
(Túngata 14)
Kvennaheimilið var vígt 1967 með listsýningu á
verkum kvenna og nefnt Hallveigarstaðir í minningu Hallveigar
Fróðadóttur. Þar hefur Kvenfélaga-samband
Íslands aðsetur ásamt Bandalagi kvenna í Reykjavík
og Kvenréttindafélagi Íslands. Í húsinu
rættist gamall draumur margra kvenna um kvennaheimili í Reykjavík.
8. UNUHÚS
(Garðastræti 15)
Una Gísladóttir (1855-1924 leigði út herbergi
og hafði kostgangara og Erlendur sonur hennar eftir hennar dag. Una
seldi fæði ódýrar og leigði herbergi lægralægra
verði en aðrir hér í bæ. Þess vegna
dróst einkum að húsi hennar fólk, sem lítil
hafði auraráð eða hvergi átti þak yfir
höfuðið. Húsið varð þekkt aðsetur
ungra skálda og listamanna á fyrstu áratugum 20.
aldar.
9. HLAÐVARPINN
(Vesturgata 3b)
Menningar- og félagsmiðstöð kvenna í eigu kvenna.
Hér er rekið Kaffileikhúsið og matsölustaður.
10. STÍGAMÓT
(Vesturgata 3)
Stígamót, samtök kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi,
voru stofnuð 8. mars 1990. Til Stígamóta komu 24 karlmenn
og 231 kona á árinu 2002 í fyrsta viðtal.
11. REITIR
MILLI TRYGGVAGÖTU OG HAFNARSTRÆTIS
Áður voru hér pakkhús og fiskreitir. Margar konur
höfðu þann starfa að
þvo fiskinn, breiða hann til þerris á reitunum
og raða síðan í stafla. Einnig störfuðu
konur við að bera kol og annan varning í pakkhúsin.
Þetta voru kalsöm og erfið störf. Laun verkakvenna
voru helmingur af launum verkamanna. Þegar Verkamannafélagið
Dagsbrún var stofnað 1906 var samþykkt að konur hefðu
ekki aðgang að félaginu því menn óttuðust
samkeppni um vinnu og í launum. Verkakonur stofnuðu eigið
félag 1914, Verkakvennafélagið Framsókn. Þessi
félög voru sameinuð 1997 og starfa nú saman í
Eflingu.
12. TOLLSTÖÐIN
(Tryggvagata 19)
Mosaikmynd utan á húsinu er eftir listakonuna Gerði
Helgadóttur (1928-1975), sett upp 1973. Gerður ánafnaði
Kópavogsbæ mörg verka sinna og þar er nú
listasafn kennt við listakonuna, Gerðarsafn.
13. PÓSTHÚSSTRÆTI
3-5
Byggt sem barnaskóli 1883 en varð lögreglustöð
þegar nýi barnaskólinn
reis við Tjörnina (sjá nr. 35). Í húsinu
eru nú skrifstofur.
Fyrsta lögreglukonan var ráðin Jóhanna Knudsen
1941. Konur fengu þó ekki að klæðast lögreglubúningum
fyrr en 1976 og ekki ganga í öll störf fyrr en 1978.
Í upphafi árs 2002 voru konur 9,5% af lögregluliði
Reykjavíkur.
14. HÉRAÐSDÓMUR
REYKJAVÍKUR (við Lækjartorg)
Auður Þorbergsdóttir (1933-) var skipuð borgardómari
í Reykjavík 1972, fyrst kvenna. Auður er fyrsta konan
sem framkvæmdi hjónavígslur hér á landi,
frá 1963. Í upphafi árs 2003 voru borgardómarar
21, þar af sex konur.
15. LÆKJARTORG
Hér stóð einn brunna bæjarins, Thomsensbrunnur,
þar til vatnsveita var
lögð í bæinn 1909. Sjá einnig nr. 6 um Prentsmiðjubrunn).
16. AUSTURSTRÆTI
12
Margrét Zoega rak Hótel Reykjavík eftir lát
manns síns Einars Zoega
en hótelið brann 1915 ásamt fleiri húsum. Þegar
úrslit lágu ljós fyrir í bæjarstjórnarkosningunum
1908 (sjá nr. 1) héldu konurnar upp á sigurinn hjá
Margréti.
Hér hafði Kristólína Guðmundsdóttir
Kragh (1883-1973) hárgreiðslustofu
sína um tíma, en hún var fyrsta lærða hárgreiðslukonan
á Íslandi. Alls lærðu
35 nemar iðnina hjá henni.
17. AUSTURSTRÆTI
10
Ljósmynda- og ljósprentunarstofa Sigríðar Zoëga
& Co. var hér á árunum 1934-1981. Stofuna stofnuðu
Sigríður Zoëga (1889-1968) og Steinunn Thorsteinsson (1886-1978).
Þær hættu rekstri 1955 og gáfu Þjóðminjasafni
Íslands allt plötusafn sitt en Bryndís Jónsdóttir
dóttir Sigríðar rak ljósprentunarstofuna til
1981. Ljósmyndasafnið er eitt af merkustu ljósmyndasöfnum
sem varðveitt eru á Þjóðminjasafni.
18. AUSTURSTRÆTI
8 (áður Ísafoldarprentsmiðja, nú í
Aðalstræti 12)
Kristjana Markúsdóttir (1870-1961) er fyrsta nafngreinda
konan sem vann
í prentsmiðju. Hún starfaði í Ísafoldarprentsmiðju
1892-1897 og var eina konan sem starfaði í prentsmiðju
hér á landi á 19. öld. Hún starfaði
síðar í mörg ár í verslun Augustu
Svendsen (sjá nr. 6). Einfríður María Guðjóns-dóttir
(1888-1971) vann hér við bókband fyrst kvenna. Hún
hóf störf 1904 og öðlaðist síðar sveinsréttindi.
Ófaglærðar stúlkur fengu aðgang að Hinu
íslenska prentarafélagi 2932. Í upphafi árs
2002 voru konur 17% þeirra félagsmanna í Félagi
bókagerðarmanna sem höfðu sveinspróf.
19. THORVALDSENSBASAR
(Austurstræti 4)
Thorvaldsensfélagið er elsta kvenfélag Reykjavíkur,
stofnað 1875. Tildrögin voru þau að ungar stúlkur
voru fengnar til að skreyta Austurvöll og undir-búa sölu
á veitingum er líkneski af myndhöggvaranum Bertil Thorvaldsen
var sett þar upp. Eftir þetta samstarf ákváðu
ungu konurnar að halda hópinn og vinna saman að mannúðar-
og menningarmálum, stofnuðu félag og kenndu það
við myndhöggvarann. Starfsemi Thorvaldsensfélagsins hefur
aðallega beinst að líknarmálum,
og þá einkum til kvenna og barna. Basarinn hefur verið
starfræktur í Austurstræti 4 frá því
um aldamótin 1900 og vinna félagskonur þar kauplaust.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
20. AUSTURSTRÆTI
1 (nú Ingólfstorg)
Guðrún Borgfjörð (1856-1930) bjó á árunum
1872-1877 í húsi er hér stóð og var kallað
Veltan. Hún þráði að ganga menntaveginn en
fékk ekki og gerðist saumakona í Reykjavík og
kenndi einnig stúlkum fatasaum og hannyrðir. Bræður
hennar gengu hins vegar menntaveginn og urðu þjóðkunnir
menn: Klemens Jónsson landritari og Finnur Jónsson prófessor
við Kaupmanna-hafnarháskóla. Guðrún var virk
í Thorvaldsensfélaginu (sjá nr. 19) og kjörin
heiðursfélagi þess 1929.
21. VALLARSTRÆTI
4
Kristín Björnsdóttir Símonarson rak hér
bakarí er kennt var við mann hennar og nefnt Björnsbakarí
frá 1901. Sonur Kristínar og Björns tók síðar
við rekstrinum. Hann rak hér einnig gistiheimilið Hótel
Vík fram yfir 1970. Kvennaframboðið og síðar
Kvennalistinn í Reykjavík tóku síðar húsið
á leigu fyrir starfsemi sína en konur buðu fram sérlista
í Reykjavík á árunum 1982-1994. Borgarstjóri
Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
sat áður í borgarstjórn og á Alþingi
fyrir Kvennalistann.
22. THORVALDSENSSTRÆTI 2
Þóra og Páll Melsted stofnuðu Kvennaskólann
1874 sem var jafnframt heimili þeirra. Söfnuðu hjónin
fé til skólans bæði hérlendis og í
Danmörku. Þóra heklaði m.a. marglitt gólfteppi
og voru happdrættismiðar fyrir því seldir bæði
hér og í Danmörku. Þannig fengust nærri
200 krónur og var það undirstaða kvennaskólasjóðsins.
Húsið sem enn stendur byggðu þau á grunni
hins gamla 1878 og var kvennaskólinn hér til húsa
þar til nýtt hús var byggt við Fríkirkjuveg
árið 1909 (sjá nr. 36).
23. KIRKJUSTRÆTI
4
Kristín Þorvaldsdóttir rak fyrstu listaverkaverslun
landsins í kringum 1920 í húsi er hér stóð.
Gróa Oddsdóttir rak matsölu ásamt dætrum
sínum á síðari hluta 19. aldar. Margar ekkjur
sáu sér og sínum farborða með þessum
hætti enda hvorki til ekknastyrkir né atvinnumöguleikar
miklir fyrir konur.
24. KIRKJUSTRÆTI
8b
Sigríður Sigurðardóttir Bruun (-1913) byggði
hér hús 1906 og rak veitinga-húsið Skjaldbreið
en var áður með matsöluna "Sigríðarstaði"
í Kirkjuhvoli (sjá nr. 27). Sigríður lærði
matreiðslu í Kaupmannahöfn. Elín Egilsdóttir
(1886-1961) keypti Skjaldbreið um 1920 og rak áfram til 1930.
Hún kenndi einnig stúlkum matreiðslu og byggði sumarhótelið
Þrastarlundí Grímsnesi 1928. Elín tapaði
öllum eigum í kreppunni.
25. KIRKJUSTRÆTI
12 (nú á Árbæjarsafni)
Hér var heimili Thoru Friðriksson (1866-1958). Hún var
ein af fyrstu kennslukonunum við Barnaskólann og gerði
veturinn 1904-1905 tilraun með skóla fyrir ungar stúlkur
á heimili sínu. Hún stofnaði ásamt Kristínu
Sigurðsson verslunina París 1915, en hún var til húsa
í Ingólfshvoli, á mótum Hafnarstrætis
og Pósthússtrætis (nú viðbygging Landsbanka
Íslands). Thora ritaði mikið í blöð og
tímarit.
Berklavarnarstöð Líknar starfaði hér 1941-1956.
Hjúkrunarfélagið Líkn stofnuðu nokkrar konur
í Reykjavík 1915 og var fyrsti formaður þess Christophine
Bjarnhéðinsson hjúkrunarkona (mágkona Bríetar
Bjarnhéðins-dóttur, sjá nr. 1 og 38). Heilbrigðisástandið
í bænum var þá mjög slæmt og opinber
heilbrigðisþjónusta engin. Líkn réð
strax hjúkrunarkonu til að sinna heimahjúkrun, lagði
fátæklingum mikið lið, stofnaði berklavarnarstöð
í bænum 1919 og hóf ungbarna- og mæðraeftirlit
1927. Nánast öll heilsuverndarstarfsemi í Reykjavík
var byggð upp og rekin að frumkvæði Líknar allt
fram á fjórða áratug aldarinnar, að undanskildum
sóttvörnum. Fyrir Líkn störfuðu m.a. Katrín
Thoroddsen læknir og Sigríður Eiríksdóttir
hjúkrunarkona (móðir Vigdísar Finnbogadóttur,
fyrrv. forseta) sem tók við formennsku af hendi Christophine
1931 og gegndi til 1956. Þá hafði Reykjavíkurbær
byggt Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg og
yfirtók starfsemi Líknar.
26. ALÞINGISHÚSIÐ
(Kirkjustræti)
Íslenskar konur fengu kosningarétt til Alþingis 1915
- en urðu þá að vera orðnar fertugar að aldri.
Þessu var breytt 1920 í kjölfar Sambandslaga Íslendinga
og Dana og síðan hafa konur haft jafnrétti við karlmenn
á þessu sviði. Fyrsta konan sem tók sæti
á Alþingi var Ingibjörg H. Bjarnason (1868-1941) en
hún var kjörin á þing af kvennalista 1922. Í
kosningunum 2003 urðu konur 30% kjörinna þingmanna sem
var nokkur fækkun frá kosningunum 1999 er konur urðu
35% þingmanna.
27. KIRKJUTORG
4 (KIRKJUHVOLL)
Sigríður Sigurðardóttir rak hér veitingasölu
um tíma (sjá nr. 24). Theódóra Sveinsdóttir
(1876-1949) hóf rekstur matsöluhúss í Kirkjuhvoli
1925 eða 1926, hélt vinsæl matreiðslunámskeið
fyrir konur og karlmenn og leigði út veislusali. Hún
rak einnig Ferstiklu í Borgarfirði á sumrin 1932-1936,
gisti- og veitingahús í Reykholti í Borgarfirði
1933-1940 og veitingahús við Hvítárbrú
í Borgarfirði 1937-1947. Theódóra var í
Hússtjórnarskóla Reykjavíkur (sjá nr.
37) um tvítugt og síðar á góðum hótelum
og við nám í Kaupmannahöfn um tíma.
28. SKÓLABRÚ
2
Þessi áfangastaður er dæmi um líf vinnukvenna
í Reykjavík þar sem vistin var jafnframt góður
hússtjórnarskóli. Hér var heimili Ólafs
Þorsteinssonar læknis og Kristínar Guðmundsdóttur
og jafnframt læknastofa hans og síðar sona þeirra
á árunum 1912-1984. Í húsinu er nú
skjalasafn Alþingis.
Fjölskyldan hafði ávallt 1-2 vinnukonur. Þær
voru yfirleitt ungar stúlkur, oft komnar um langan veg til að
sjá sér farborða í Reykjavík sem sogaði
til sín sívaxandi mannfjölda frá byrjun 19.
aldar. Vinnukonan fór yfirleitt fyrst á fætur, kom
börnunum í skólann, hreinsaði eldstæði,
bar inn eldivið, kveikti upp, þvoði þvotta, hreinsaði
gólf, þvoði upp og fór í sendiferðir.
Launin voru lág og frídagar aðeins eftir kl. 2 á
fimmtudögum og annar hver sunnudagur frá sama tíma.
Vinnukonustéttin hvarf á árum heimsstyrjaldarinnar
síðari. Atvinnu-möguleikar ungra kvenna urðu þá
mun fjölbreyttari, en heimilistæki héldu einnig innreið
sína og störf á heimilum gjörbreyttust.
29. LÆKJARGATA
8
Heimili Þórunnar Jónassen, sem kjörin var í
bæjarstjórn af kvennalista árið 1908 (sjá
nr. 1). Þórunn var formaður Thorvaldsensfélagsins
(sjá nr. 19) frá stofnun þess 1875 til dauðadags
1922 og fulltrúi þess í Landspítalasjóðs-nefndinni
sem konur komu á fót 1915. Með byggingu spítalans
vildu konur reisa minnisvarða þeirri réttarbót
er þær öðluðust 19. júní 1915 (sjá
nr. 26).
30. LÆKJARGATA
4 (nú á Árbæjarsafni)
Kristín Bjarnadóttir frá Esjubergi (1812-1891) nam
ljósmóðurfræði og var ljósmóðir
á Kjalarnesi þar til hún flutti til Reykjavíkur
1871 í hús er hér stóð. Kristín
varð ekkja árið 1882. Sama ár samþykkti Alþingi
að ekkjur og aðrar ógiftar konur skyldu hafa kosningarétt
í sveitarstjórnum, en þó ekki kjörgengi.
Kristín neytti atkvæðisréttar síns 1888,
fyrst kvenna í Reykjavík.
Ingibjörg Bjarnadóttir, dóttir Kristínar, bjó
hér einnig ásamt manni sínum, Þorláki
Johnson kaupmanni. Þau ráku veitingastaðinn Hermes. Þegar
Þorlákur lét af kaupmennsku setti Ingibjörg á
fót vefnaðarvöruverslun í húsinu og var
hún jafnan kennd við hana.
31. MENNTASKÓLINN
Í REYKJAVÍK (Lækjargata)
Skólahúsið var reist 1846. Stúlkur höfðu
ekki aðgang að skólanum
fyrr en 1904, en máttu taka próf frá árinu
1886. Ólafía Jóhannsdóttir lauk 4. bekkjar
prófi utanskóla árið 1890. Laufey Valdimarsdóttir,
dóttir Bríetar Bjarnhéðinsdóttur (sjá
nr. 1 og 38) settist hér á skólabekk fyrst kvenna
haustið 1904 og lauk stúdentsprófi þaðan1910.
Áður hafði ein stúlka tekið stúdentspróf
utanskóla, Elínborg Jacobsen. Camilla Torfason lauk stúdentsprófi
í Kaupmannahöfn 1889 og Björg Karitas Þorláksdóttir
1901,
en í Danmörku fengu stúlkur aðgang að æðri
menntastofnunum þegar árið 1875. Stúlkur voru
í minnihluta stúdenta fram til 1970 en eftir 1979 hafa þær
verið í meirihluta.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands
1980-1996, var nemandi
og síðar kennari við skólann. Fyrsta konan til að
gegna embætti rektors M.R. var Ragnheiður Torfadóttir,
1995-2001.
32. LÆKJARGATA
12 (nú Íslandsbanki)
Jónína Jónatansdóttir (1869-1946) bjó
hér ásamt manni sínum frá um 1920 og mörg
ár eftir það. Jónína var hvatamaður
að stofnun Verkakvennafélagsins Framsóknar 1914 (sjá
nr. 11) og formaður þess frá stofnun til 1934. Hún
var einnig einn af stofnendum Alþýðuflokksins og Alþýðusambands
Íslands. Jónína sat í bæjarstjórn
1920-1922.
33. LÆKJARGATA
12 B (nú bílastæði)
Anna Teitsdóttir Benediktsson (1874-1963) varð ekkja 1901.
Frá þeim tíma rak hún matsölu, fyrst á
Ísafirði í tíu ár og síðan
til ársins 1929 í húsi er hér stóð
en brann 1967.
34. MÓÐURÁST (Lækjargata)
Styttuna gerði listakonan Nína Sæmundsson (Jónína
Sæmundsdóttir, 1892-1965) í París 1924 og hlaut
hún heiðurssess á Haustsýningunni á Grand
Palais það ár. Árið 1928 lét Listvinafélagið
kaupa myndina og setja hana upp í almenningsgarði í
Reykjavík, Mæðragarðinum, og var hún fyrsta
myndin sem sett var upp utan dyra í Reykjavík án
þess að vera minnisvarði.
35. BARNASKÓLI
REYKJAVÍKUR (Fríkirkjuvegur 1)
Byggður 1898. Konur urðu fljótt margar í kennaraliði
skólans og 1919 var komið á launajafnrétti kennara
og kennslukvenna. Konurnar sem kjörnar voru í bæjarstjórn
1908 af kvennalista létu sér annt um heilsufar skólabarna.
Þær komu því m.a. til leiðar að 1909
var byrjað að gefa fátækum börnum mat í
skólanum, að skólinn var þveginn daglega og að
ráðinn var fastur læknir. Skólinn er nú
aðsetur Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur.
36. KVENNASKÓLINN
Í REYKJAVÍK (Fríkirkjuvegur 9)
Stofnaður 1874 en starfræktur frá árinu 1909 í
þessu húsi sem var byggt sérstaklega fyrir hann. Þóra
Melsted (1823-1919) stofnaði kvennaskóla 1874 á heimili
hennar og Páls Melsted að Thorvaldsensstræti 2 og byggðu
þau hjón nýtt hús undir starfsemina og heimili
sitt á grunni gamla hússins 1878 (sjá nr. 22). Þóra
hafði kennt við skóla fyrir stúlkur í Reykjavík
sem systir hennar Ágústa stóð fyrir 1851-1853
í Dillonshúsi við Suðurgötu (nú á
Árbæjarsafni). Þóra veitti Kvennaskólanum
forstöðu frá 1874-1906 en þá tók við
stjórninni Ingibjörg H. Bjarnason (sjá nr. 26). Fram
til 1904 áttu íslenskar stúlkur engan raunhæfan
kost annan á framhaldsmenntun utan kvennaskóla.
37. IÐNÓ
Hússtjórnarskólinn var hér til húsa
1897-1918. Hann hélt námskeið fyrir verðandi húsmæður
og seldi mat til kostgangara. Hvert námskeið stóð
í þrjá mánuði. Skólinn var stofnaður
af Elínu Briem (1856-1937) og starfrækti hún skólann
fyrstu árin ásamt frænku sinni Hólmfríði
Gísladóttur.
Þann 5. júní 1910 héldu ýmsar konur
samsæti í Iðnó til heiðurs Ástu Kristínu
Árnadóttur (1883-1955), er lauk iðnmeistaraprófi
í Kaupmannahöfn sama ár, fyrst Íslendinga. Ásta
lauk prófi í málaraiðn aðeins 26 ára
gömul og var fyrsta konan sem lauk iðnnámi.
Stefanía Anna Guðmundsdóttir (1876-1926) var í
hópi fyrstu leikara Leik-félags Reykjavíkur sem fékk
aðsetur í Iðnó frá árinu 1897. Þær
leikkonur eru margar sem hér stigu sín fyrstu spor í
leiklistinni.
38. BÍLASTÆÐI
ALÞINGIS (Templarasund)
Hér stóð áður Gúttó. Góðtemplarar
byggðu það 1887 og var það lengi eitt helsta samkomuhús
bæjarbúa en var rifið 1968. Bríet Bjarnhéðinsdóttir
(1856-1940) flutti þar fyrsta fyrirlestur kvenmanns á Íslandi
30. desember
1887 og bar hann heitið "Fyrirlestur um hagi og rjettindi kvenna".
Heimildir
Anna Þorbjörg
Þorgrímsdóttir. Matseljur og kostgangarar í
Reykjavík. Lokaritgerð í sagnfræði við
H. Í., 1996
Auður Styrkársdóttir. Kvennaframboðin 1908-1926.
Félagsvísindadeild H. Í.
og Örn & Örlygur, 1982
Ármann Halldórsson. Saga barnaskóla í Reykjavík
til 1930. Rannsóknastofnun KHÍ í samvinnu við
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, 2001
Björg Einarsdóttir. Úr ævi og starfi íslenskra
kvenna. Bókrún. Bindi I, 1984 og bindi II-III, 1986
Bríet Héðinsdóttir. Strá í hreiðrið.
Svart á hvítu, 1988
Eggert Þór Bernharðsson. Saga Reykjavíkur.
Borgin. Fyrri og síðari hluti. Iðunn, 1998
Erla Hulda Halldórsdóttir og Guðrún Dís
Jónatansdóttir (ritstj.). Ártöl og áfangar
í sögu íslenskra kvenna. Kvennasögusafn Íslands,
1998
Guðjón Friðriksson. Saga Reykjavíkur. Bærinn
vaknar. Fyrri og síðari hluti. Iðunn, 1991
Sami. Iðnó við Tjörnina. Sjómannafélag
Reykjavíkur og Verkamannafélagið Dagsbrún, 1997
Sami. Reykjavík bernsku minnar. Setberg, 1985
Guðmundur Ingólfsson, Guðný Gerður Gunnarsdóttir
og Hjörleifur Stefánsson. Kvosin. Torfusamtökin,
1987
Inga Lára Baldvinsdóttir. Ljósmyndarar á
Íslandi. JPV útgáfa og Þjóðminjasafn
Íslands, 2001
Kvennaskólinn í Reykjavík 1874-1974. Almenna
bókafélagið, 1974
Margrét Guðmundsdóttir. 'Verðir heilbrigðinnar.
Hjúkrunarfélagið Líkn 1915-1935' í Söguspegill.
Afmælisrit Árbæjarsafns. Ritstjóri Helgi M.
Sigurðsson. Árbæjarsafn og Hið íslenzka bókmenntafélag,
1992
Sama. 'Ræstingakonan í ráðhúsinu við
Tjörnina' í Kvennaslóðir. Rit til heiðurs
Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi. Kvennasögusafn
Íslands, 2001
Sigríður Th. Erlendsdóttir. Veröld sem ég
vil. Saga Kvenréttindafélags Íslands 1907-1992.
Kvenréttindafélag Íslands, 1993
Sigríður Thorlacius. Margar hlýjar hendur. Kvenfélagasamband
Íslands, 1981
Sigurður Gylfi Magnússon. Lífshættir í
Reykjavík 1930-1940. Menningarsjóður, 1985
Vigfús Guðmundsson. 'Búnaðarmál í
Reykjavík' í Þættir úr sögu Reykjavíkur.
Félagið Ingólfur, 1936
Þórbergur Þórðarson. Í Unuhúsi.
Mál og menning, 1962
|